nei sko!

Gírinn eeeeer að finnast!!    Ehmm.. ég meina sko saumagírinn Tounge

sauma Tók fram saumadótið í gærkvöldi og ég er handviss um að ég náði að sauma allavega 20 spor!!! W00t     

Þetta er þó allavega byrjun... sé til hvort  ég verð enn í gírnum í kvöld þegar skæruliðar eru komnir í ból Wink    Verst að ég er búin að leita dauðaleit að déskotans batteríunum í myndavélina mína... var með þau í hleðslu og svo faldi bóndinn þau einhversstaðar svo vel að ég finn þau ekki aftur!!! 

NEI ég er ekki með þau á mjöðminni!!!!! Angry

Ætli ég þurfi ekki að ræna bara batteríunum úr fjarstýringunni svo ég geti tekið WIP mynd bráðlega.  Einhverja sönnun verður maður nú að hafa fyrir að ég sé allavega komin í fyrsta gír Wink  

Ég snörla út í eitt og aldrei er snýtuklúturinn langt undan... stærsti skæruliði slapp við skóla í dag þar sem þegar hann fór á náðhúsið í morgun eftir morgunmatinn voru bunur í báðar áttir *jukkkkk* Sick    Varð nú ekki meira en þessi eina "tvöfalda" ferð svo ég vona að hann sleppi vel frá þessum fjanda.   Miðskæruliði fékk nú eitthvað magavesen líka í gær en það varð nú bara yfir daginn sem betur fer og alltaf náði hann á koppinn.    Leist nú ekkert á blikuna þegar hann í einni ferðinni skoðar afurðirnar vel og vandlega og tilkynnti svo með háum róm:    Þetta er bara alveg eins og KAKÓ!!

SickSickSickSick


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Linda litla

HA HA HA HA HA þetta er eins og kakó !!

Ekki líst mér á þetta allir að fá einhverskonar pest hjá þér, þetta er nú meira pestabælið.

En til hamingju með að vera búin að grípa í saumadótið, keep on going

Linda litla, 20.11.2007 kl. 14:38

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já og endilega haltu áfram að leita að batteríunum, svo við getum séð árangurinn svart á hvítu, eða grænt á rauðu

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 21.11.2007 kl. 12:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Saumakonan
Saumakonan
útsaumur og önnur handavinna er mitt líf og yndi.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband