24.11.2007 | 22:37
Hrein og fín...
eftir langþráða sturtuferð þar sem allt steinryk og málningarflögur hurfu niður í niðurfallið og skrúbbaðar voru samviskusamlega allar dauðar húðfrumur í burtu með þessum líka fína grófa svampi sem fjárfest var dýrum dómum í RL vöruhúsi í síðustu borgarferð. Ahhhhhh mikið djööö var þetta notalegt... var farin að iða í skinninu hér eftir afrakstur dagsins í hreinsunarstörfum og ég get svo svarið það... ég fer ALDREI aftur í það að skrapa málningu af lofti... í FLEGNUM BOL!!!
Þurfti sko ekkert "push up" dæmi fyrir bobbingana því brjóstahaldarinn var fullur af málningu!! *klæj*
Eins leit út fyrir að ég hefði stungið hausnum í steinryksdollu því hárið stóð sjálft upprétt eins og ég hefði spreyjað það með nokkrum brúsum af gráum lit og hárspreyji!!
Verður ekki amalegt þegar þessi klefi verður kominn upp í nýja baðherberginu.... fyrst sturta.... svo nudd... (meira að segja nudd á "botninn"!!) og svo að lokum gufa með ljúfa tónlist í eyrunum... ahhhhhh hlakka til að vígja herlegheitin
Nú bíður mín kall, sófi, teppi og einhver góð bíómynd svo ég býð góðrar nætur.... dreymið ljúfa drauma elskurnar mínar
Tenglar
Dúllurassar
fleiri bloggvinir...
Handavinna og föndur
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.