17.11.2007 | 14:16
Nýja eldhúsið mitt...
er komið upp!!! Að vísu vantar enn borðplötu, vask og svo á eftir að setja helluborðið og háfinn en samt... wúhaaaa þetta er allt að koma!!!
Þarna sést hvar ofninn og ísskápurinn verða (kemur borðplata seinna undir glerskápinn) og seinni myndin sýnir hvar ofninn er kominn á sinn stað
Þarna sést hvar vaskurinn og uppþvottavélin verða á fyrri myndinni (uppþvottavélin upphækkuð svo léttara verði að setja í hana) og á seinni sést hornið og hvar helluborðið og háfurinn verður. Eigum svo eftir að velja borðplötu en settum eina þarna í hornið svona til að sjá hvernig þetta lítur út með borði (verður ekki þessi litur). Glugginn er semsagt beint á móti innréttingarhlutanum sem er sýndur á efstu myndunum
Er búin að versla höldurnar og verða þær svona smíðajárnshöldur sem gefa innréttingunni smá gamaldags "country" fíling (ég er svo gamaldags sko)
Verð með 80cm breitt spanhelluborð með 5 hellum (veitir ekki af með stóra fjölskyldu) og get ekki beðið eftir að fara að gera fínt þarna!!! Mikið djöööö hlakka ég til að flytja!!!!
Erum að vandræðast með hvernig lit við eigum að hafa á korkinum á gólfinu og svo á borðplötunni... verðum með hnotuparket á borðstofunni (sem er risastór beint innaf eldhúsinu) og líka í stofunni og ganginum (þar sem dyrnar eru á eldhúsinu) og svo verður mahogny stigi beint á móti eldhúsdyrunum... spurning um að fá ljósan kork og svo einhvernvegin viðarlita borðplötu... held það yrði of dökkt ef við fengjum okkur plötu í mahogny Já og svo er stofan panelklædd líka svo það er voða svona gamaldags blær yfir öllu (en samt allt nýtt hehe).
Endilega gefið mér hugmyndir um liti á vegg, flísar á milli skápa, borðplötu og gólf!!!
Tenglar
Dúllurassar
fleiri bloggvinir...
Handavinna og föndur
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
mér finnst þetta geggjað hvernig þetta kemur út :) til hamingju :)
Freydís Hrefna Hlynsdóttir, 17.11.2007 kl. 14:34
Frábært! Til lukku! Kominn tími til að það færi að komast mynd á þetta hjá þér :-)
(en, hérna, hvar er öndin?)
Einar Indriðason, 17.11.2007 kl. 15:18
Flott innrétting, ég þyrfti að breyta til á mínu heimili.... Til hamingju
Linda litla, 17.11.2007 kl. 15:29
ertu semsagt hætt við gráu borðplötuna, hvítgráu gólfflísarnar og mislitu flísarnar fyrir neðan skápana ?????? þessar mislitu flísar eru það flottasta sem ég hef séð lengi lengi....
Svanhildur Karlsdóttir, 17.11.2007 kl. 16:10
kallinn segir að þetta sé of dökkt Myndi fá leið á því eftir einhvern tíma og vill frekar eitthvað sem passar betur við allt hitt.
Einar... "öndin" er í biðstöðu... hef ekki saumað í rúma viku!!!!
Saumakonan, 17.11.2007 kl. 16:21
Þetta var nefnilega orðinn hinn besti leikur... að reyna að finna (hugsanlega ókláraða) önd einhvers staðar á myndum sem þú setur inn...... :-)
Einar Indriðason, 17.11.2007 kl. 16:45
hehehe nei ég er ekki flutt en vonandi verð ég flutt fyrir jól Erum að myndast við að byggja og ætli ég flytji ekki inní hálfklárað hús (úfffff).
Saumakonan, 17.11.2007 kl. 18:26
Þó að húsið sé ekki tilbúið þá er þetta samt ykkar hús og alveg þess virði að búa í hálfkláruðu húsi.
Linda litla, 17.11.2007 kl. 18:37
Æðislega flott Hmmm???? Bíddu við???? Erum við frænkur???? Ég er líka svona svoldið fyrir gamalt....gömul taugrulla, gömul Singer saumavél og fleira í þeim dúr. Næst þegar þú kemur í Borg Óttans þá kíkjum við frænkur saman í Virku....Díll???? Knús á þig
Elín Katrín Rúnarsdóttir. , 17.11.2007 kl. 23:43
Lofar góðu eldhúsið þitt, held að þetta verði rosa flott. Betra að flytja inn í hálfklárað heldur en að ganga fram af sér. Gangi þér samt vel.
Ásdís Sigurðardóttir, 19.11.2007 kl. 01:00
Vá flott innrétting. Mér heyrist á mínum karli að það sé nýjast nýtt núna litlar flísar mosaik, ljósblár litur er mjög róandi fyrir slysabálka
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 19.11.2007 kl. 11:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.