16.11.2007 | 14:10
Engin WIP
Á næstunni þar sem ég hef ekki saumað STAKT SPOR í heila VIKU!!!! Hendin er nú samt öll að koma til en þar sem húðin er enn ansi aum þá hef ég ekki lagt í að fara að sauma og stinga mig svo á nálinni!
Einn brandari fyrir ykkur í staðinn bara... Var að fletta gömlum Vikum og rakst á einn góðann
Magnús fór í kirkju á hverjum sunnudegi en sofnaði um leið og hann var sestur á kirkjubekkinn. Guðrún var ósátt við þetta og einn sunnudaginn tók hún langan hattprjón með sér til að pota í hann þegar hann sofnaði. Presturinn sagði: "Hann skapaði allt á sex dögum en þann sjöunda hvíldist hann...." og þá potaði Guðrún í karl sinn. Hann æpti upp yfir sig: "Guð minn almáttugur!!" og söfnuðurinn tók undir og sagði "Halelúja!"
Magnús dottaði aftur og Guðrún potaði í hann í þann mund sem presturinn sagði: ".... sem dó á krossinum fyrir okkur," Magnús stökk upp og öskraði: ,, JESÚS KRISTUR!!!" Söfnuðurinn svaraði: ,, Halelúja!"
Magnús settist niður en fylgdist hálfluktum augum með konu sinni. Presturinn sagði: ,,... og hvað ætli Eva hafi sagt við Adam þegar annað barn þeirra fæddist?"
Í því stakk Guðrún Magnús sem stökk á fætur og æpti: ,, Ef þú stingur þessu enn einu sinni í mig þá BRÝT ÉG ÞAÐ Í TVENNT!!"
*hóst*
Tenglar
Dúllurassar
fleiri bloggvinir...
Handavinna og föndur
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
hahahahahahahahahahahahahahahaha
Dísa Dóra, 16.11.2007 kl. 14:27
HA HA HA HA þessi kom sterkur inn hahaha
Linda litla, 16.11.2007 kl. 14:35
hehehehehe......
Svanhildur Karlsdóttir, 16.11.2007 kl. 16:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.