16.6.2007 | 23:52
blautbuxnakeppni?
Mætti halda það já... allavega þurfti nokkrum sinnum að skipta um föt á skæruliðum eftir sull í vatni í dag. Eins fallegt að maður er með aðgang að þvottavél!!
Búið að vera rólegheitadagur í dag hjá ansi skakklappalegri saumakonu... bílferðin í gær hefur greinilega tekið meira á en ég ætlaði mér og mikið vildi ég ná númerinu á helvvv valtaranum sem keyrði yfir mig grrrrr Svona nálægt kvöldinu fór þetta nú aðeins að skána... fór í nokkra stutta göngutúra til að reyna að liðka liðina aðeins og meira að segja tókst að draga bóndann með í einn!
Á morgun er ætlunin að skipta um bíl (fá 4x4 fjallabíl) og kíkja í fjölskylduferð í "óbyggðir" með björgunarsveitarmönnum... grilla, fara í leiki og hafa gaman með börnunum Spurning bara hvort ég þurfi ekki áfallahjálp eftirá þar sem ég er alveg óskaplega bílhrædd í svona jeppum og að fara einhverja slóða þar sem HÁTT er niður er ekki mín sterkasta hlið... gott þó að þetta eru vanir björgunarsveitarmenn á trukkum með alle græjur svo hægt verði að ná mér útúr bílnum þar sem ég verð örugglega frosin föst við mælaborðið og allt sem hægt er að halda í
Ferðin í fjörðin fagra sem við vorum að spá í verður að bíða betri tíma þar sem það var eiginlega ekki hægt að samræma vinnuna hjá bóndanum við þá ferð
þar til næst.... eigið góða nótt og ljúfa drauma elskurnar mínar
Tenglar
Dúllurassar
fleiri bloggvinir...
Handavinna og föndur
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Góða nótt og ljúfa drauma elskan.
Heiða Þórðar, 17.6.2007 kl. 00:23
Gleðilega þjóðhátíð, krúttið mitt!
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 17.6.2007 kl. 22:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.