Ofát...

Át yfir mig af lifrarpylsu og blóðmör í gær og núna af Hafragraut og slátri!!!    Djööö að maður skuli ekki kunna sér hóf!! W00t 

Búið að vera rólegt hér á heimilinu... bóndinn fór með tvo elstu skæruliðana í grenjandi rigningu að horfa á skemmtiatriðin niðri á bryggju en þeim til sárrar gremju var siglingunni aflýst.

Ég notaði tækifærið og gekk frá þvílíkum þvottahaug á meðan... uppvaskið var klárað af... skrúbbaði bekki og vask í eldhúsinu... þvoði nokkrar vélar... saumaði smá í Merry Xmas og glápti á Rachael Ray á skjánum Tounge      Svo var að hendast í búðina... fattaði korter í 6 að það vantaði mjólk... elda hafragrautinn.... gefa grislingum og bónda að éta... ganga frá eftir matinn og vaska meira upp... fleaaahhhh ég HATA UPPVASK!!!   (eins fallegt að ég á uppþvottavél) Tounge

Það er alveg stórfurðulegt... maður er búin að vera svoooo dugleg að taka til og þrífa... svo er bara allt orðið í rúst strax aftur!!!    Er mikið að spá í að fara bara í verkfall!!!!Angry

Jæja... best að koma lillemann í ból... hinir eldri busla í baði og svo ætla ég að njóta þess að sitja bara og sauma eða kúra með bóndanum í sófanum yfir einhverri ræmu í kvöld þegar búið verður að koma öllum skæruliðum í bólið Smile      síjaaaaa alles Kissing


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Matthilda M. Eyvindsd Tórshamar

Ég reyndi einu sinni að fara í verkfall og hvað hafði ég upp úr því? Jú, enn meira drasl, uppvask og þvott. Var í tvo daga að taka til eftir þetta verkfall, borgaði sig ekki. Og ég á ekki einusinni uppþvottavél.

Matthilda M. Eyvindsd Tórshamar, 2.6.2007 kl. 21:08

2 Smámynd: Heiða  Þórðar

Át sjálf yfir mig í kvöld. Um geðveik tilfinning! Og búin að svæfa...

Heiða Þórðar, 3.6.2007 kl. 00:20

3 Smámynd: Ólafur fannberg

náttúrulega fékk ég ekkert slátur og með því skamm gleymdir mér besta vininum sem ætla með þér biður skógarfoss í lekum þurrbúningi meina flotgalla

Ólafur fannberg, 4.6.2007 kl. 12:47

4 Smámynd: Ólafur fannberg

biður í síðustu færslu átti að vera NIÐUR

Ólafur fannberg, 4.6.2007 kl. 14:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Saumakonan
Saumakonan
útsaumur og önnur handavinna er mitt líf og yndi.
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband