30.5.2007 | 11:39
út með púkann!!!
Vorum búin að plana að skreppa kanski suður á bóginn yfir sjómannahelgina en það verður víst lítið gert þar sem miðskæruliðinn rauk upp með 40°c hita í gærkvöldi! Var nú samt hitalaus í morgun en ég treysti því mátulega þar sem hann gæti nú verið rokinn upp aftur seinnipartinn miðað við fyrir reynslu.
Með svona hitatoppum fylgir þónokkur athyglissýki svo það var nóg að gera hjá frúnni í gær að reyna að skipta sér á milli 3ja skæruliða sem kröfðust athygli Tölvan fékk að mestu leyti að vera í "fríi" nema bara rétt til að tékka á pósti.
Tók törn í saumaskapnum þegar grislingar voru komnir í ból í gærkvöldi... ákvað að uppvaskið og tiltektin mætti sko alveg bíða enda kominn tími á smá "hvíldarstund" eftir skæruliðaárásir yfir daginn hehe
Nú verður tekin törn á heimilinu.... minstingi kominn í ból að lúlla sér... miðjuskæruliði fer líka að hvíla sig smá eftir smá stund og sá elsti út að hjóla eða leika sér. Þvottahaugurinn bíður eftir að sé gengið frá honum og eins skrímslið í þvottahúsinu... best að nota tækifærið og hengja út á meðan enn er sól!
Er víst spáð grenjandi rigningu hér en það er nú ekkert nýtt!
Farin í tiltektina og slagsmálin við þvottaskrímslið! Já og svo smá kaffipásur/saumapásur svona inn á milli
Ójá.... TAKK æðislega fyrir öll kommentin við WIP Merry Xmas... maður bara roðnaði!!! Þið eruð svooooo yndisleg öll!!! *knús á línuna*
Tenglar
Dúllurassar
fleiri bloggvinir...
Handavinna og föndur
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.