ARRRGGGHHHHH!!!!!

Smá púst hér!!!   Ég ÞOLI ekki þegar fólk veður yfir aðra á skítugum skónum og dæmir án þess að hafa hugmynd um hvað það er að tala um!!!    AngryWoman2

Má maður ekki tjá sig um neitt nema það sé allt voða gott og yndislegt??? Ef maður vogar sér að fá smá útrás á prenti og skrifa af sér áhyggjur og ýmis vandræði sem tilheyra daglega lífinu þá er maður dæmd sem óhæf móðir sem hefur ekki áhuga á að hugsa um börnin sín!!   Fjölskyldan mín er mér ALLT... veit ekki hvar ég væri án hennar!  

Lífið er ekki alltaf sanngjarnt og ég hef fengið minn skerf af mótlæti, sérstaklega heilsufarslegu en yfirleitt er ég sú sem reyni að brosa og sjá björtu hliðarnar... ég á yndislegan mann.... yndisleg börn... jú þeir geta verið erfiðir stundum litlu skæruliðarnir mínir en common... ALLIR eiga sína slæmu daga!      

Ég veit aldrei hvað nýr dagur ber í skauti sér... get eiginlega aldrei planað neitt fyrirfram þar sem ég veit aldrei hvernig heilsan er frá degi til dags... sumir dagar eru góðir... aðrir virkilega slæmir... hef ég þá ekki leyfi til að "kvarta" smá á mínum slæmu dögum??    Á ég bara alltaf að vera með tannkremsbrosið og segja "ha jújú... allt í fína hér sko"????

Er ég eitthvað verri móðir þó ég sé öryrki vegna míns sjúkdóms og þurfi aðstoð stundum???  Þykir mér eitthvað minna vænt um börnin mín??    NEI og aftur NEI!!!!   

Fjandinn hafi það... fólk ætti að líta í eigin barm áður en það dæmir aðra!!!

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

Alveg getur það verið fyndið hvernig fólk lætur. Reyndu að láta þetta ekki pirra þig, saumakonukrútt. Það þurfa allir að pústa og eru betri manneskjur en verri fyrir vikið. Spurning um að reyna að forðast fólk sem virðist vera svona illgirnilega þenkjandi ... eða bara svona vitlaust? (er soldið fúl fyrir þína hönd)

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 27.5.2007 kl. 17:00

2 Smámynd: Gunna-Polly

hvern á ég að lemja fyrir þig?


Gunna-Polly, 27.5.2007 kl. 20:14

3 identicon

Ég skal segja þér að fólk getur verið svo ógeðslega ílla innrætt að það er engu lagi líkt. Ég skal segja þér að fyrir nokkrum vikum (2 eða 3) var hringt í mig frá barnavernd af því að það hafði komið tilkynning ÚT AF HÁVAÐA SEM VÆRI ÖRUGGLEGA EKKI GÓÐ FYRIR BÖRNIN!!!!

ÞAÐ VÆRI KANSKI Í LAGI EN ÉG Á EKKI STEREÓGRÆJUR, ÉG Á EKKI ÚTVARP OG ÉG ER EKKI MEÐ HÁTALARA VIÐ TÖLVUNA MÍNA. ÉG HELD ALDREI PARTÝ.  Þessi skítseyði í nágrenninu eiga erfitt greynilega en sjá ekki eigin galla. HOW LOW CAN YOU GO?

Svo hertu upp hugann það er hellingur af svona pakki út um allt því miður 

Alvilda Gunnhildur Magnúsdóttir (IP-tala skráð) 27.5.2007 kl. 21:19

4 Smámynd: Gerða Kristjáns

Knús á þig gamla mín

Gerða Kristjáns, 27.5.2007 kl. 22:24

5 Smámynd: Saumakonan

Takk fyrir peppið elskurnar mínar     Er nú búin að ná mér aðeins niður eftir æsinginn en varð bara svo skelfilega sár eitthvað þegar bláókunnug manneskja fer að drulla yfir mig og mína fjölskyldu á Fjölskylduheimasíðu (ekki hér á moggablogginu) að aumingja kallinn minn þurfti að róa mig í gegnum síma!!   Orðatiltæki eins og að "drita niður börnum"... "nenna ekki að hugsa um þau" og margt fleira álíka kom þarna fram sem gerði mig gersamlega miður mín þar sem mér fannst á mig ráðist og ég ekki eiga þessi orð skilið.

Polly mín... þú þarft engan að lemja elsku kellingin mín... þessi grátlega manneskja sem er svo aumkunarverð að hafa ekkert annað að gera en að rakka niður annað fólk á víst nógu bágt fyrir greinilega.

Verður farið í það á morgun að læsa hinni síðunni (ef það er hægt) því svona líð ég ekki á fjölskyldusíðu þar sem börnin mín lesa það sem þar er skrifað.  

Já Alvilda mín... sumir hafa bara ekkert þarfara að gera en að fylgjast með öðrum... yfirleitt er það nú hreinlega bara öfund og illkvittni sem gerir að þetta fólk rakkar niður aðra.  Svei bara! 

Saumakonan, 27.5.2007 kl. 23:15

6 Smámynd: Einar Indriðason

Ég hef mörg orð til að lýsa svona ... pakki.  En... þar sem ég er (yfirleitt) kurteis... þá ætla ég að duga að lýsa svona ... pakki, með einu orð:  "HELV. PAKK!"  (óh... þetta voru víst tvö orð...)

Einar Indriðason, 28.5.2007 kl. 13:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Saumakonan
Saumakonan
útsaumur og önnur handavinna er mitt líf og yndi.
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband