18.5.2007 | 10:13
Syfjuð....
Eftir frekar erfiða nótt... Minnsti skæruliðinn tók uppá því að verða sárlasinn líka með hita og hóstaköstum í gærkvöldi og nóttin leið með slagsmálum með "baby hailer" og pústi, göngu um gólf til að létta öndun og eins og allir vita þá laga mömmutúttur flest hjá litlum lösnum gutta svo móðirin gengur nú um eins og zombie, geyspandi með auma bobbinga
Verður greinilega engin útivera næstu daga með þessu áframhaldi... það er kalt úti og það SNJÓAÐI hér í gær!!! Brrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrr... ég vil SUMAR takk!!!!
Komst náttúrulega ekki með miðskæruliða á leikskóla í morgun svo hann á eftir að hrella mömmu sína þónokkuð í dag, orðinn ansi leiður á inniverunni og lasleikanum og vill lítið dunda sér með dótið sitt... áðan var hann kominn í skó og úlpu og ætlaði út að leika!!!

Eigið góðan dag elskurnar.... geyyyyyyyyyyyssssppppppp!
Tenglar
Dúllurassar
fleiri bloggvinir...
Handavinna og föndur
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.4.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 1155
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Blessunin, ekki gott að vera vansvepta, þó þau sofi lítið þessar elskur, þá eru þau full af orku samt sem áður, hvernig sem á því stendur. Átti ég að gefa einkunn ? Fattaði það ekki

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 18.5.2007 kl. 20:19
Vona að þú náir góðum svefni fljótlega, elskan mín!
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 18.5.2007 kl. 20:23
Æj krúttið litla. En hvar býrðu eiginlega fyrst það snjóar ennþá hjá þér? Á Grænlandi eða?
Brynja Hjaltadóttir, 18.5.2007 kl. 20:40
Ha... einkun hvað Ásthildur mín? Engar einkannagjafir hjá mér allavega
Brynja... bý í langtíburtistan... eða á suðausturlandi hehehehe
Og snjórinn festi ekki en það voru assgoti stór korn sem flugu hér um í gær. Sást til sólar í dag en það var samt KALT! brrrrrrr
Gurrí mín.... geri mitt besta til að ná smá kríu af og til... svona er þetta bara að vera grasekkja hehe
Saumakonan, 18.5.2007 kl. 21:48
fra+bær mynd af þér
Gunna-Polly, 18.5.2007 kl. 22:01
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.