16.5.2007 | 11:49
Leiftur McQueen....
annað sinn sem Cars eru í tækinu í morgun... hvað er þetta með börn og endurtekningar???? Að vísu er þetta ágætis mynd en það er alveg furðulegt að ég held að ég hafi aldrei horft á ALLA myndina... ég er alltaf að gera eitthvað annað svo það eru bara bútar og bútar sem ég sé í hvert sinn. Kanski næ ég að horfa á hana alla þegar hún verður spiluð í ÞRIÐJA sinn á eftir
Ilmandi matarlykt í húsinu.... kjöt í ofninum og er að fara að búa til sósu "a la saumakonan" sem verður náttúrulega algert sælgæti eins og venjulega Ákvað að hafa bara hátíðarmatinn í dag sem átti að vera á morgun þar sem eftir daginn í dag verð ég orðin grasekkja fram á næsta þriðjudag Úff það verður erfitt að venjast þessum vöktum hjá kallinum... fæ hálfgerð kvíðaköst þegar ég hugsa til þess að þurfa að sjá um allt ein hér... Ekki það að ef heilsan væri í lagi þá væri þetta ekkert mál en þar sem aumi skrokkurinn minn er búinn að vera ansi pirrandi undanfarið þá er það aðeins verra mál Ohhjæja.. þetta tekst eins og allt annað sem ég ætla mér... maður þarf bara að plana og skipuleggja aðeins meira
eigið góðan dag elskurnar.... farin að búa til gúmmelaðisósu
Tenglar
Dúllurassar
fleiri bloggvinir...
Handavinna og föndur
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
kvitt frá borg óttans!
Gunna-Polly, 16.5.2007 kl. 12:16
innlitskvitt
Ólafur fannberg, 16.5.2007 kl. 15:17
Hjá mér er Hundalíf vinsælast núna. Grimmhildur Grámann, Jakob, Hörður og allir hundarnir, frá því að dúllan kemur heim af leikskóla. Þetta er skemmtileg mynd, en öllu má nú ofgera.
Matthilda M. Eyvindsd Tórshamar, 16.5.2007 kl. 15:35
Nammi namm ekkert jafnast á við góða sósu................... segja tengdadæturnar. En ég sendi þér knús og góða orku í einverunni elskuleg.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 16.5.2007 kl. 22:00
innlitskveðja mín kæra
Heiða Þórðar, 17.5.2007 kl. 01:20
Morgunkvitt:) hafðu það gott
Sædís Ósk Harðardóttir, 17.5.2007 kl. 09:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.