7.5.2007 | 14:23
Öll að skríða saman...
Vil byrja á því að þakka fyrir batakveðjurnar
Er enn hálfslöpp og ræfilsleg, get lítið gert nema svitna og fá svimaköst en þetta er allt í áttina samt. Get allavega setið aðeins við tölvu en það var gersamlega ómögulegt nema í stutta stund um helgina vegna hamrandi verktaka í hausnum á mér (assgotinn.. hefði frekar viljað hafa þá við vinnu í húsinu!) Sófinn er minn staður svona á milli að maður reynir að dröslast til að gera einhver húsverk hér á heimilinu.
Ekki gekk ég á whisky birgðirnar hjá kallinum þrátt fyrir hvatningu... maður laumast ekkert í þetta flotta whiskysafn... ekkert slor sem um er að ræða (flottara úrval en í Heiðrúnu og margt fæst ekki hér á landi). Enda er hann alger safnari og nokkrar flöskur verða örugglega ekki opnaðar næstu árin
Hann er nú líka svo heppinn að mér finnst whisky ekkert gott svo hann fær að hafa sinn lager í friði!
Yfir og út... sófinn bíður!
Dóhhhhhhhh!!!! Var næstum búin að GLEYMA!!!
TIL HAMINGJU MANCHESTER UNITED!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
og koma svo...... GLORY GLORY MAN UNIIIIIIIIITED..... GLORY GLORY MAN UNIIIIIIIITED..... la la la la la la la la
Tenglar
Dúllurassar
fleiri bloggvinir...
Handavinna og föndur
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.4.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 1155
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
manchester hvaða söngtríó er það? eða er það íshokkílið?Hvernig er kvefið á bragðið?
Ólafur fannberg, 7.5.2007 kl. 15:03
*sparkírassáFannberg* púki!!!!!
Saumakonan, 7.5.2007 kl. 15:04
Bíddu... Þú sagðist *EKKI* hafa komist í viskídæmið.... Hvaða söngvatn var þetta þá?
Einar Indriðason, 7.5.2007 kl. 15:07
KAFFI!!!
Désgoti gott fyrir sára hálsa *tíst*
Saumakonan, 7.5.2007 kl. 15:12
Gott að þú ert að skríða saman flensufríkið mitt.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 7.5.2007 kl. 20:41
vil bara benda þér á að
Arsenal-konur urðu fjórfaldir meistararman hvað?
Arsenal er enskur meistari, bikarmeistari, deildabikarmeistari og Evrópumeistari í kvennabolta og hana nú
Gunna-Polly, 7.5.2007 kl. 21:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.