28.4.2007 | 11:55
Laugardagur til lu.... nei annars...
til ÞRIFA!!
Dagurinn í gær endaði nú ekki með algerum púkaskap eins og einn bloggvinur minn spáði heldur í sófanum en samt ekki alveg afvelta Tók smá skurk í Merry Xmas en þarf greinilega að finna mér eitthvað til að hafa svona á "milli" þar sem spottaskiptingin er að gera mig ga ga ga! Eitt spor... skipta um nál og lit... nei sko.. 2 spor hér... skipta... 1 spor... skipta... jahvurassgotinn... heil 5 spor hér! ARG!
Ohhjæja.. hún vex allavega "smá" í hvert skipti hehehehe
Í dag verður svo tekið til hendinni.. bæði í saumaskap og þrifum! Uppþvottavélin komin af stað... þvottavélin líka og nú þarf ég að fara út og klippa snúrurnar í sundur! Öhmm.. ekki til að skemmileggja heldur svo kallinn láti nú verða af því að koma með NÝJU snúruspottana því hinir voru orðnir ansi grænir og mosaslepjulegir (jukkkkk) Er í einhverju þrifnaðarstuði... gott veður úti og já eins og ein vinkona mín sagði í kommenti við síðustu færslu... hitaeiningarnar brenna við þrifin!
Svo er að setjast niður á milli og sauma nokkra spotta Kanski skelli ég inn árangursmynd í kvöld.. hvur veit
Tenglar
Dúllurassar
fleiri bloggvinir...
Handavinna og föndur
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.4.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 1155
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hey, kvöldið er liðið, hvar er myndin kjéllíng ??
Gerða Kristjáns, 29.4.2007 kl. 00:07
Fínt að fara í þrifnaðarstuð stundum...bara ekki of oft
Ólöf , 29.4.2007 kl. 08:36
Jæja, loksins búin að finna vasareikninn og get farið að kommenta aftur ;);)
Hvar er árangursmyndin?
Hjördís (IP-tala skráð) 29.4.2007 kl. 08:49
dóhhhh sowwwwyyyyy.... árangursmyndin kemur í dag þar sem það þurfti að setja upp eitthvað myndavesen í tölvunni... hreinlega fattaði ekki hvaða tölvu ég er að vinna í
Mín er í viðgerð fyrir sunnan og kallsins tölva er víst eitthvað að bögga hann líka svo hann tengdi gamla tölvu við sinn skjá og það er bókstaflega EKKERT í þessari tölvu nema rétt það nauðsynlegasta hehe
Saumakonan, 29.4.2007 kl. 10:07
Skil ekkert í þér, Keila, að vera að vinna á netinu í gegnum ritvél.
Annars er spurning, hvort þú ættir ekki að vera með fleiri nálar í gangi, ef það er það sem tefur framför við Sundhettuna, að þurfa alltaf að vera að þræða nálina aftur.
Einar Indriðason, 29.4.2007 kl. 11:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.