31.3.2007 | 19:59
Morgunmatur í kvöldmat??
Úfff... sit hér á meltunni eftir óhollustuna... Bacon-steiktar pylsur-spæld egg og ristað brauð (jú og hvítlaukskartöflur, afgangur síðan í gær) jummýýýýý! Skil ekki hvernig hægt er að hafa svona í morgunmat eins og tíðkast í öðrum löndum.. ég yrði afvelta á hverjum morgni og það yrði ekkert úr verki! *dæs*
Nú styttist óðum í fríið mitt... Tjöruborg nk mánudag og svo út til Frakkaríkis á Skírdag
Er búin að taka töskurnar fram en það er líka það eina sem tilbúið er... jú búin að þvo allan þvott og langt komin með að þrífa eldhúsið þar sem ég ætla sko að hafa allt tipp topp þegar ég fer... ekkert er eins óskemmtilegt og að koma heim eftir frí og þurfa að byrja á því að taka til!!! Mesta furða hvað ég er róleg yfir þessu öllu saman... hmm.. ætli stressið fari ekki að láta á sér kræla á morgun þegar verður farið að pakka niður á fullu



Tenglar
Dúllurassar
fleiri bloggvinir...
Handavinna og föndur
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.4.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Lokar bara augunum meðan þið farið í gegnum göngin ;)
Hjördís (IP-tala skráð) 31.3.2007 kl. 21:19
öööö virkar ekki svoleiðis... búin að prófa í göngunum hér! Jú ég komst í gegn með því að setja Eyfa og Stebba diskinn á... setja allt í botn og syngja.... "góða ferð góða ferð góða feeeeeeerrrrrrðððððððð..... góða ferð já það er allt og síðan brooooooooooos.... " (bara verst að ég æri restina af familíunni í leiðinni
)
Saumakonan, 31.3.2007 kl. 21:54
ein viskiflaska þá er þetta ekkert mál
Ólafur fannberg, 31.3.2007 kl. 22:04
Hm já, hvernig förum við aððessu??? Sláum þig í hausinn með hamri og vonum að þú rankir úr rotinu þegar við erum komin í gegn!
Lilja franska (IP-tala skráð) 2.4.2007 kl. 08:27
sammala sidasta raedumannni
hälsnig från soliga småland , åker til göteborg og farsan i dag
Gunna-Polly, 4.4.2007 kl. 08:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.