25.2.2007 | 12:10
Argghhhhhhhhh !!!
Af hverju fór ég að asnast til að lesa gömul e'mail??????????????????? Var að fara í gegnum möppur og sá þá eina merkta einni "sauma netvinkonu" frá USA... Asnaðist til að fara að lesa í gegnum þetta og nú sit ég með tárin rennandi Hún sendi mér fullt af munstrum að utan og þar á meðal hrikalega sætt (en stórt) munstur af saumaherbergi þar sem kona situr við sauma með allskonar handavinnudót í kring þar sem hún vissi að ég væri að fara að flytja í nýtt hús (er ekki flutt enn *dæs*) og myndi fá mitt eigið "saumaherbergi".
Síðasta setningin í þessu bréfi var : I want to see a picture posted on the board of your new stitching room with the "Sewing Room" picture hanging on the wall. LOL!
Því miður kemur hún aldrei til með að fá að sjá þessa mynd í mínu nýja saumaherbergi þar sem þessi yndislega kona lést núna fyrir stuttu og var það mikið áfall fyrir okkur "saumavinkonur" hennar þar sem þetta kom gersamlega flatt uppá okkur... höfðum ekki hugmynd um að hún væri svona mikið veik, hún talaði aldrei um sín veikindi Vildi óska að ég hefði getað hitt hana í persónu einhvern tíma
Hvíl í friði Cheryl Miller...
Mitt áramótaheit (þótt seint sé) verður að KLÁRA þessa mynd og hengja hana upp í saumaherberginu nýja einhvern daginn... og ég má hundur heita ef ég stend ekki við þetta!!!!!!!!
Farin að sjóða kartöflur ef ég sé þær í gegnum tárin
Tenglar
Dúllurassar
fleiri bloggvinir...
Handavinna og föndur
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.8.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Og þegar þú ert búin að sauma hana og hengja hana upp í saumaherberginu þá seturðu mynd af henni á 123 mb.......hver veit...... ?
Gerða Kristjáns, 25.2.2007 kl. 12:39
Sure will do!!! Og ég er sko handviss um að hún á eftir að kíkja á MB þarna að ofan og brosa
Saumakonan, 25.2.2007 kl. 12:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.